Sundlaug Sjálfsbjargar

Sundlaugin

Sundlaugin er heitari en venjulegar almenningslaugar, eða um 33°C. Hún er 17 metra löng og dýpsti hluti hennar er 1,6 metrar.

Við hlið laugarinnar eru tveir heitir pottar. Heitir pottar eru góðir fyrir vöðva og liði en þær sem eru með bjúg og/eða æðahnúta ættu að forðast að vera mikið í heitum pottum og ef til vill sprauta köldu vatni á fótleggi í sturtu til þess að fá æðaveggi til að dragast saman.

Við mælum með því að þið notið aðallega kaldari pottinn og dveljið ekki of lengi í pottunum.

Staðsetning

Sundlaugin er staðsett í Sjálfsbjargarhúsinu Hátúni 12, 105 Reykjavík.

Ath að það eru 3 inngangar merktir sundlauginni en við förum inn á norðurhlið hússins sem er fyrir neðan húsið (sunnan megin (ofan við húsið) er nú eingöngu neyðarútgangur).

Ef komið er niður Hátún frá Laugavegi þarf að keyra niður fyrir Sjálfsbjargarhúsið og beygja til hægri neðan við húsið, þar eru tveir inngangar merktir sundlauginni. Við notum inngang nr. 3 við hliðina á fyrirtækinu Saumu og förum með lyftunni upp á 1. hæð (komum inn í kjallara). Sundlaugin er svo á ganginum á hægri hönd þegar komið er út úr lyftunni.