Vorönn 2024

Það er hreyfing í hópana hjá okkur í hverri viku.  Upplýsingar um laus pláss í hópum og skráning í hóp eða á biðlista fer fram í tölvupósti og þurfum við meðfylgjandi upplýsingar:  Áætlaðan fæðingarmánuð, símanúmer, hvaða tíma þið veljið (hádegistíma, kvöldtíma eða hvort báðir komi til greina).

Allar nánari upplýsingar veitum við í tölvupósti medgongusund@medgongusund.is

We are taking registrations for our classes or waiting list through email.  If you need more information, please contact us at medgongusund@medgongusund.is

Sólrún Sverrisdóttir eigandi Meðgöngusunds

Sundleikfimi hjá sjúkraþjálfurum

Meðgöngusund er sundleikfimi fyrir barnshafandi konur. Áhersla er lögð á stöðugleikaþjálfun fyrir mjóbak og mjaðmagrind auk fræðslu. Einnig eru gerðar liðkandi og styrkjandi æfingar fyrir allan líkamann.

Meðgöngusund er með tíma tvisvar í viku, ýmist á morgnana eða á kvöldin undir stjórn sjúkraþjálfara sem eru útskrifaðir úr læknadeild Háskóla Íslands. Allir kennarnir okkar eru með réttindi í skyndihjálp, björgun í vatni og sundlaugarvörslu.

Meðgöngusund hefur verið starfrækt frá árinu 2001 og er fyrsta sundleikfimin fyrir barnshafandi konur á Íslandi. Góð reynsla er því komin á Meðgöngusund og hefur það reynst sérstaklega vel til að minnka verki frá stoðkerfinu, auk þess sem það er bjúgminnkandi. Flestar konur koma vegna meðmæla frá ljósmóður, lækni eða sjúkraþjálfara.

Vildi þakka kærlega fyrir mig. Ekkert smá ánægð með líkamlegt ástand mitt eftir sundið. Þorði ekki að vona að þetta myndi hafa svona góð áhrif á grindina og bara allt. Mæli með sundinu við allar óléttar sem ég þekki!!-
Einnig vil ég þakka ykkur kærlega fyrir frábæra leikfimi og fræðslu, hvílíkur munur að geta haldið heilsu út meðgönguna. Ég gekk síðast með fyrir 9 árum og gat varla hreyft mig vegna verkja í stoðkerfinu frá miðri meðgöngu. Núna byrjaði ég í sundinu þegar ég fór að finna til og náði með ykkar hjálp að stoppa verkina! Þið eruð bara frábærar, þúsund þakkir 🙂-
Ég verð að láta þig vita að ég er gríðarlega ánægð með reynsluna úr meðgöngusundinu og mun mæla með því við allar vinkonur mínar. Mér fannst sjúkraþjálfararnir allar frábærar. Faglegar fram í fingurgóma ásamt því að fræða okkur um margt gagnlegt og gott varðandi meðgönguna.-

Meðgöngusundið er kennt alla virka daga og eru bæði hádegis- og kvöldtímar í boði.

Sjá tíma í boði

Kortin okkar

4 vikur

18.000 kr.
  • Gildir í 4 vikur
  • Kort virkjast í byrjun kennsluviku
  • Undir stjórn sjúkraþjálfara

12 vikur

48.000 kr.
  • Gildir í 12 vikur
  • Kort virkjast í byrjun kennsluviku
  • Undir stjórn sjúkraþjálfara

Viðbótarvika

5.000 kr.
  • Gildir í eina kennsluviku
  • Kort virkjast í byrjun kennsluviku
  • Undir stjórn sjúkraþjálfara